Listamenn í Hveragerði
Veljið flokk t.d. Listgrein og skrifið síðan nafn listgreinar í auða reitinn. t.d. Myndlist.
Þá birtast allir myndlistarmenn sem skráðir eru inn í grunninn.
Listgreinar eru: Myndlist, hönnun, bókmenntir, kvikmyndagerð, tónlist, leiklist og dans.
| Nafn | Listgrein | Upplýsingar | Netfang | Mynd |
|---|---|---|---|---|
| Karl Jónatansson | Tónlist | f. 24.02. 1924, d. 03.01.2016 Karl Jónatansson tónlistarmaður og tónlistarkennari hóf búskap sinn í Frumskógum 4 með konu sinni Sólveigu Björgvinsdóttur árið 1948. Karl var þekktastur fyrir harmonikuleik og er án efa sá harmonikukennari sem kennt hefur fleira fólki á harmoniku á Íslandi en nokkur annar. Karl og Sólveig fluttust frá Hveragerði nokkrum árum síðar og fékkst Karl bæði við hljómsveitastjórn t.d. í Vetrargarðinum ásamt að leika með nokkrum hljómsveitum, bæði á harmoniku en einnig á trompet og saxafón. Karl varð fyrsta stjórnandi harmonikuþáttarins á RÚV sem margir kannast við. Karl var mikill félagsmálamaður og frumkvöðull í útbreiðslu harmonikunnar. Hann stofnaði Félag Harmonikuunnenda í Reykjavík, Félag Harmonikuunnenda við Eyjafjörð, Harmonikufélag Reykjavíkur og var einn aðal hvatamaður og fyrsti formaður Landssambands Íslenskra Harmonikufélaga sem og fyrrgreindra félaga. Karl og Sólveig bjuggu lengst af í Reykjavík en fluttust í Hveragerði 2013 og enduðu sinn búskap í Frumskógum 6, þar sem Sólveig býr enn. | ingikarlsson@gmail.com |
|
| Ragnheiður Helga Jónsdóttir | Myndlist | Mála aðalega vatnslita- og olíukrítarmyndir. | ranka2107@hotmail.com |
|
| Gréta Berg Bergsveinsdóttir | Myndlist | Fædd 1948 á Akureyri. Áhugasvið: Sköpun upp úr ljóðum, sköpun hugarmynda, táknmynda, andlegar myndir, álfar og lifandi náttúra, líf í öðrum víddum, teikningar í blýant og krít. Vinnur í olíu, akrýl, myndir á steinum í flæðivinnu, táknmyndir. Menntun: Listabraut FB 2002-2005, Myndlistarskólinn í Reykjavík og á Akureyri, nám í listmeðferð (Art Therapy). Hefur skapað sína eigin meðferð í "Myndsköpun" í hóp á HNLFÍ. Gréta er félagi í Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Upplýsingar um hana og slóð að myndum hennar er að finna á www.umm.is. Gréta er með vinnustofu á heimili sínu að Kambahrauni 35, sími 663-8975. | gretabergth@gmail.com |
|
| Guðmundur Kristmundsson | Tónlist | grgu@ismennt.is |
|
|
| Hrönn Waltersdóttir | Hönnun | Hrönn er keramik hönnuður | galleris@centrum.is |
|
| Guðmundur F. Benediktsson. | Tónlist | Ég er frá Selfossi fæddur 1951 og byrjaði ungur að fást við tónlist, fyrst í Bimbó tríói síðan í Mánum og er þar enn.Hef verið í ýmsum hljómsveitum í millitíðinni, s.s. Brimkló, Haukum, Upplyftingu.Mannakornum,þjóðlagasveitinni Islandica og ýmsum fleirum auk þess að hafa unnið ýmsa hljóðversvinnu. Er tónmenntakennari að mennt(útskrifaðist 1976) hef starfað við grunnskólakennslu og einkakennslu. Einnig hef ég starfað sem sölumaður í hljóðfæraverslunum. | gfben@mmedia.is |
|
| Valgarð Runólfsson | Kvikmyndagerð, Leiklist | Fæddur 1927 í Reykjavík. Lauk prófi frá Kennaraskólanum 195X, skólastjóri í Hveragerði 1958-xxxx er hann stofnaði Ferðaþjónustu Suðurlands í Hveragerði. Stofnaði ásamt fleirum Öldungadeildina í Hveragerði, undanfara Öldungadeildarinnar við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Var einn af stofnendum Lyons í Hveragerði, leiðsögumaður ferðamanna frá 19XX allt til dagsins í dag. Virkur félagi í Leikfélagi Hveragerðis í áratugi. Framleiðandi, handritshöfundur og leikari í kvikmyndunum Tunglið, tunglið taktu mig og Gilitrutt, sem hann vann ásamt Ásgeiri Long. Valgarð er hagyrðingur góður og hefur einnig samið allnokkuð af lögum. Sum þeirra hefur píanóleikarinn og tónsmiðurinn Árni Ísleifsson útsett fyrir blandaða kóra. | bollival@gmail.com |
|
| Ragnheiður Helga Jónsdóttir | Myndlist | ranka2107@hotmail.com |
|
|
| Norma E. Samúelsdóttir | Myndlist | Félagi í Rithöfundasambandi Íslands síðan 1982 Félagi í Myndlistafélagi Árnessýslu um skeið. | normaelisabet@gmail.com |
|
| Heimir Eyvindarson | Tónlist | heimir@hveragerdi.is |
|






