Menningarviðurkenning Hveragerðisbæjar
Kæru félagsmenn!
Í gær barst félaginu eftirfarandi tilkynning frá Aldísi Hafsteinsdóttur bæjarstjóra:
„Það er mér sérstök ánægja að tilkynna að Menningar-, íþrótta- og frístundanefnd hefur ákveðið að Listvinafélag Hveragerðis hljóti menningarviðurkenningu bæjarins nú á 70 ára afmælisári Hveragerðisbæjar.“
– – – – – –
„Það er ánægjulegt að geta einnig tilkynnt félagsmönnum að menningarviðurkenningin verður afhent af forseta Íslands hr. Ólafi Ragnari Grímssyni næstkomandi laugardag, 25. júní, kl. 14.
Það væri gaman að sjá sem flesta félagsmenn viðstadda þann viðburð en undirrituð gerir ráð fyrir að formaður eða stjórnin í heild taki við viðurkenningunni úr hendi forseta.“
Bestu kveðjur
Aldís Hafsteinsdóttir
Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt í hátíðarhöldum dagsins og vera viðstaddir í Lystigarðinum þegar viðurkenningin verður afhent.
Stjórn Listvinafélagsins í Hveragerði
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!